Tuesday, October 28, 2008


elsku fjölskylda
tónleikarnir þann 22. gengu rosa vel. ég spilaði á kringlóttu sviði á miðju gólkfinu. ég bjó til geisladiska til að hafa til sölu og seldust þeir allir upp enda bara 8 stykki.

hérna er myndin á disknum. Hún er af mér og kameldýri sem ég og Carly vinkona mín fundum á göngu um Harlem fyrr í mánuðinum.

Ég er búin með Andre Gide og hún endaði óskup upplífgandi. Ég er hætt að hlusta á Chopin etíður við ána. Annars geri ég svoleiðis hluti sama hvernig viðrar í lífii mínu. Ég æltaði ekki að hljóma neitt dramatísk.

Á fimmtudaginn ætla ég að flytja. Í fór upp í gullnu skógana í gær og skoðaði kofalítið hús sem ég gæti farið að leigja. Það hefði verið fullkomið ef það væri apríl. Eða ef ég væri enn að óskast eftir að komast í einangrun í fallegri náttúru. Og ef það væri ekki að verða kalt úti þá væri ég að flytja í stærðarinar höll því kofanum fylgir lóð og allt um kring er skógur. Ég ætla að hugsa málið og sjá hvað annað er í boði fyrir mig.

Ég læt ykkur vita.

Ég fékk lánað eintak af Simone de Beauvoir Memoirs of a Dutiful Daughter og las hana nærri alla í gegn á endalausri rútuferð sem ég var á í gærkveldi. Ég er óskup innblásin af lífinu.

Maðurinn minn unglambið er að koma heim annað kvöld og hefur boðið mér í heimsókn. Fyrir mánuði síðan kyssti hann mig og sagðist vonast til að ég væri hérna þegar hann kæmi aftur. og hér er ég. því ég hef ekki fengið neina leiðsögn um að gera neitt annað. ég meina, frá djúpu röddinni innaní mér.

Ég vona að þið hafið það öll sem best og að undir áhyggjum um óvissu sé kraumandi spenningur bullandi hugsjónum um bjarta framtíð í öðruvísi heimi.

ykkar

Kristínanna

1 comment:

Unknown said...

I can't understand what you're writing, beautiful kristín, but i'll try.

I wish I could learn some of icelandic language..I wish.

ok, I'm trying not to look like a weird/psycho guy, but it's kinda hard..
I am sooooo deeply in love with your music, keep on rockin' kristín.
I don't know how I found this.. but it makes my day.


ást

Seb.
(from Chile)